Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Ekki er nóg að slökkva á tækjum með fjarstýringu. Raftæki halda áfram að eyða orku í biðstöðu nema slökkt sé alveg á þeim eða þau tekin úr sambandi.

Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Vatn/vatn varmadælur

Þau helstu atriði sem íhuga þarf við uppsetningu þessara dælna eru eftirfarandi:


• Staðsetning varmalindar: þarf vatnsdælu til þess að koma varmagjafanum að leiðslum vinnslumiðils?
• Stærð varmalindar: mun varminn sem varmadælan dregur úr vatnsuppsprettunni verða til þess að
• kæla vatnið?
• Er líklegt að vatn varmauppsprettunar muni frjósa?
• Eru líkur á rafmagnstruflunum sem t.d. stöðva rennsli varmagjafa og auka líkur á að hann frjósi í
• leiðslum?

Þessi atriði gilda almennt um alla vatnstengda varmaöflun utanhúss og í jarðvegi, óháð því hvernig farið er með varmann í varmadælu. Þegar borholur eða brunnar eru nýttir sem varmalind eru yfirleitt þrjár leiðir sem koma helst til greina ef ekki er sjálfrennsli frá uppsprettunum. Þegar vatni er dælt að varmadælunni þarf að koma fyrir vatnsdælu ofan í borholunni eða brunninum. Framrásarvatnið frá varmalindinni er leitt að varmadælunni og eftir varmaskipti við vinnslumiðil varmadælunnar er bakrásarvatninu komið aftur niður í jarðveg, ýmist í minni brunn eða borholu eða jafnvel í sömu borholuna ef ekki er talið að slík aðgerð muni lækka hitastig varmalindarinnar. Þegar borað er eftir heitu vatni er ævinlega reynt að bora í vatnsæðar eða bergganga sem leiða heitt vatn inn í holuna. Inntak framrásarvatnsins er þá staðsett nálægt slíkum innstreymisstað í vel heppnuðum borholum. Að lokum þarf að leiða varmaskiptavökvann á eða nálægt yfirborði að varmadælu og það er best gert í einangrandi rörum.


Ef um t.d. rannsóknarborholu er að ræða er yfirleitt nokkur fjarlægð til hennar. Rafmagnsnotkun vatnsdælu í borholu eða brunni verður að bæta við rafmagnsnotkun varmadælu þegar nýtnistuðull er metinn.

Huga þarf að vatnsgæðum varmalindar svo að líkur á stíflum eða tæringu í leiðslum og dælum séu hverfandi. Helst er saltvökvi (sjór) varasamur í þessum efnum og þá mælst til þess að varmaskiptar séu úr títan málmi eða ryðfríu stáli af gerðunum AISI 316L og SMO 254.