Varmadæluverkefni
Orkusetur mun hleypa af stokkunum nokkrum verkefnum þar sem virkni og hagkvæmni hinna ýmsu gerða varmadælna verður kannað á Íslandi. Ætlunin er að framvindu verkefnanna verði gerð skil á vefnum þannig að áhugasamir geti fylgst með gangi mála og lagt eigið mat á ágæti framkvæmdanna. Ef séríslenskar aðstæður eru ekki neikvæðar á náttúrulegan eða hagrænan hátt gagnvart varmadæluframkvæmdum þá er líklegt að ná megi verulegum sparnaði á rafhitunarkostnaði fyrir neytendur og ríki .
Varmaflæði varmadælu.