Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Víða eru rúllugardínur notaðar og þær má draga niður að næturlagi og minnka þannig útgeislun gegnum glugga. Slíkar aðgerðir draga úr loftstreymi og kælingu við glerið.
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Reiknivélar

Berðu saman bíla

Með þessari reiknivél er hægt að bera saman rekstrar- og umhverfiskostnað bifreiða við mismunandi forsendur.  Mjög fróðlegt er að bera saman; minni og stærri bifreiðar, bensín-, dísel- og tvinnbíla, sjálfskiptar og beinskiptar bifreiðar o.s.frv.  Hægt er að velja mismunandi akstur á ári og reikna fyrir eitt eða fleiri ár í senn. Forsendur miða við blandaðan akstur samkvæmt evrópskum gerðarviðurkenningum.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Samanburður á bifreiðum

 

Hvað kostar ferðin?

Með þessari reiknivél er hægt að reikna út eldsneytis- og umhverfiskostnað við innanbæjar- og utanbæjarakstur.  Fyrir innanbæjarakstur er fjöldi kílómetra valinn en fyrir utanbæjarakstur er brottfara- og áfangastaður valinn af lista.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Ferðakostnaður

 

Hjóla- og göngureiknir

Með þessari reiknivél er hægt að sjá hversu mikið er hægt að spara af eldsneyti og útblæstri ef bifreiðin er skilin eftir heima.   Reiknivélin virkar þannig að fyrst er valið eldsneytisverð og síðan vegalengd ferðar.  Hægt er að setja inn fjölda ferða ef menn vilja taka saman endurteknar ferðir.  Einnig má sjá áætlaðan kaloríubruna ferðarinnar enda er verið að brenna líkamsfitu í stað hefðbundins eldsneytis.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Hjóla- og göngureiknir

Perureiknir

Með þessari reiknivél er hægt að skoða með auðveldum hætti áhrif þess að skipta út glóperum fyrir sparperur. Fjöldi og gerð þeirra glópera sem skipta á út er valinn og síðan er hægt að sjá sparnaðinn á mislöngum tíma. Þessi reiknivél ætti að hvetja neytendur mjög til að skipta yfir í orkuminni lýsingu með tilheyrandi rekstrasparnaði fyrir heimilið.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Perureiknir

Kolefnisbókhald

Með þessari reiknivél má sjá hvað mikið af íslenskum skógi þarf til að binda það magn koltvísýrings sem bifreið blæs út á ári.  Valinn er bifreiðategund og akstur á ári og niðurstaðan sýnir ársútblástur og nauðsynlega ársbindingu í skógi til að jafna út umhverfisáhrifin.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Kolefnisbókhald

 

Rafreiknir

Með þessari reiknivél er hægt að bera saman slæma og góða orkunýtni. Reiknivélinni er skipt í tvo hluta sem sýna nákvæmlega sömu þjónustu en með mismunandi nýtni. Hægt er að bera saman samsvarandi lýsingu með glóperum og sparperum, raforkunotkun nýrri og eldri tækja, sjónvarpsáhorf með plasma skjá eða LCD skjá o.s.frv.

Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:

Rafreiknir