Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Ef endurnýja þarf gler þá borgar sig að setja upp filmugler eða svokallað K-gler sem hefur mun betri einangrunareiginleika en hefðbundið gler.
 
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Bætt orkunýting

Meðalheimili á Íslandi eyðir árlega í kringum 3-600 þúsund krónum í orkukaup.  Með auðveldum hætti má draga verulega úr þessum kostnaði með því að spara orku í formi hita, rafmagns og olíu.

Þó að við búum svo vel hér á landi að eiga nægar orkulindir í fallvötnum og jarðhita er ekki þar með sagt að ekkert þurfi að spara þær. Með því að nýta betur innlenda orku fáum við meira út úr þeim fjárfestingum sem liggja í orkumannvirkjum landsins en slíkar fjárfestingar auka skuldir þjóðarinnar og meira af útflutningstekjunum þarf til að borga þær. Því betur sem við nýtum þessar auðlindir því meiri verður arðurinn af þeim.  Frá og með 1. janúar 2006 var notendum frjálst að kaupa rafmagn af þeim sem þeir kjósa, hvort sem er til atvinnurekstrar, heimilisnotkunar eða annarra hluta. Þetta þýðir að rafmagnsmarkaður er opinn og ætti verð því einkum að ráðast af framboði og eftirspurn. Samkvæmt hefðbundinni hagfræði ætti minni eftirspurn að leiða til aukins framboðs og lægra verðs.  Orkusparnaður getur því leitt til lægra orkuverðs sem gefur enn meiri sparnað á endanum.

Innflutningur á orku eins og olíu eykur útstreymi gjaldeyris og hefur neikvæð áhrif á vöruskiptajöfnuð landsins.  Á undanförnum árum hefur olíuverð hækkað ört og flest bendir til þess að það eigi enn eftir að hækka á komandi árum. Það sparast því mikið fé ef unnt er að nýta orkuna betur og draga þannig úr olíuinnkaupunum. Það er þess vegna allra hagur að spara orku hvort heldur sem hún er innlend eða innflutt.

Spara má orku á ýmsan máta og oft kostar það ekki nema dálitla umhugsun og árvekni.