Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Kárahnjúkavirkjun getur framleitt nægt rafmagn fyrir 50 milljónir sparpera sem loga myndu allan sólahringinn.

Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Orkunotkun

Orkunotkun á hvern íbúa á Íslandi er með því mesta sem gerist í heiminum. Um 20% af frumorku, sem notuð er í landinu, er flutt inn, en um 80% er innlend, endurnýjanleg orka. Hlutfall innlendrar orku mun aukast enn frekar á næstu árum með nýjum vatnsafls- og jarðhitavirkjunum sem eru í byggingu.
Þessa miklu raforkunotkun Íslendinga má að mestu skýra með orkufrekri stóriðju en Íslendingar eiga heimsmet í álframleiðslu á hvern íbúa. Gert er ráð fyrir að álframleiðsla á Íslandi árið 2010 verði orðin rúmlega tvö tonn á hvern íbúa landsins.  Meginskýringu á mikilli olíunotkun landsmanna er einkum að finna í fiskveiðiflota landsins en Íslendingar eiga einnig heimsmet í magni sjávarafla á hvern íbúa.
Almenn orkunotkun íslenskra heimila er einnig mjög mikil en henni má skipta niður í raforku, hita, og eldsneyti. Eins og sjá má á efri myndinni sem sýnir heildarorkunotkun heimila þá er notað mest af jarðvarma en minnst af raforku. Tölurnar eru fengnar frá Jóni Vilhjálmssyni, Verkfræðistofunni Afli.

 

 

Neðri myndin sýnir meðalkostnað heimila á ári og þar sést að stærsti hluti orkuútgjalda meðalheimilis fer í olíukaup. Þegar myndin er borin saman við myndina hér að ofan sést berlega hve mikil búbót felst í jarðhitanum. Hafa ber í huga að hér er tölur frá 2005 en síðan þá hefur verð á olíu hækkað langt umfram verð innlendrar orku og ætti rauða súlan að vera komin yfir 200 þúsund kr. á heimili í dag.

 

orkukostnadur.sulur