Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Ein olíutunna tekur um 120 kg.  Því þarf að flytja inn tæplega sex tunnur á ári fyrir hvern Íslending vegna notkunar í samgöngum.

Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Geymsla matvæla

Um 20% raforku fer í að kæla og frysta matvæli. Til að forðast orkutap ætti að opna kæliskápa og frystigeymslur sem sjaldnast og aldrei hafa opið í langan tíma í einu.  Í kæliskáp er nægilegt að hafa 4°C en ÷18°C í frystigeymslunni. Lægri hiti eykur aðeins orkunotkun en kemur ekki að gagni. Til þess að fylgjast með hitastiginu í kæligeymslunum er nauðsynlegt að hafa í þeim hitamæla. Þeir kosta lítið. Því kaldara sem er úti því meira þarf að kynda. Á sama hátt nota kæliskápar og frystikistur því meiri orku sem þau standa í heitara herbergi. Frystirinn er því best geymdur í kaldri geymslu og kæliskápurinn þarf að standa þannig að loft geti auðveldlega leikið um kæligrindina aftan á skápnum. Henni þarf einnig að halda vel hreinni (nota ryksugu þegar skápurinn er tekinn fram). 

 

isskapur

Nýir kæliskápar og frystiskápar nota mun minni orku en eldri.

Dæmi: 10 ára ísskápur (528 kWh/ári) sem skipt er út fyrir nýjan A+ (194 kWh) gefur 334 kWh sparnað á ári sem samsvarar um 3.000 kr.

Opinn ísskápur er engum til gagns.