Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Skilvirkasta leiðin til markvissra loftskipta er að lofta vel út í 10-15 mínútur en hafa alla glugga lokaða þess á milli.
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Loft/loft varmadælur

Markmið lagningar upphitunarkerfa í húsnæði er að hækka lofthita. Algengustu gerðir varmadælna á heimsmarkaði nýta lofthita utanhúss og blása heitu eða köldu lofti innanhúss (til upphitunar eða kælingar). Þannig verður varmadælan einnig miðstöð í loftræstikerfi húsnæðisins og getur bætt loftgæði innanhúss, oft nauðsynlegt á heilbrigðisstofnunum, skólum og almennt þar sem fólk kemur saman. Til eflingar varmaskipta utandyra sem innan eru notaðir viftur eða blásarar sem auka loftstreymi að vinnslumiðli varmadælu. Hagkvæmni þessarar gerðar varmadælna er yfirleitt minni en vatn/vatn varmadælnanna, eða með COP stuðul um 2, en þennan stuðul má hækka t.d. með einhverri endurnýtingu varmans sem hverfur frá húsnæðinu. Einnig má nýta vatns- eða bergvarma öðrum megin dælunnar og loft innandyra, en þá tölum viðum vatn/loft varmadælur eða berg/loft varmadælur.