Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Ein olíutunna tekur um 120 kg.  Því þarf að flytja inn tæplega sex tunnur á ári fyrir hvern Íslending vegna notkunar í samgöngum.

 
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða
opnir gluggar

Loftun

Nauðsynlegt er að endurnýja loft í híbýlum okkar reglubundið. Það er mikil sóun á hita og fjármunum að hafa glugga opna langtímum saman.  Slík síloftun er afar ómarkviss leið til loftskipta og veldur miklu hitatapi. Skilvirkasta leiðin til markvissra loftskipta er að lofta vel út í 10-15 mínútur en hafa alla glugga lokaða þess á milli.

Opnir gluggar skila litlum loftskiptum en valda miklu hitatapi með tilheyrandi kostnaði. "Að henda peningum út um gluggann" er slæm aðferð við loftskipti.