Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Í eldri húsum getur oft verið hagkvæmt að bæta einangrun í þaki.
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Röðun húsmuna

Röðun innbús hefur áhrif á orkuþörf við hitun húss. Bókahillur eða veggteppi á útvegg minnka orkutap, þær draga úr loftstreymi við kaldan útvegginn. Húsgögnum er oft stillt fast upp að ofnum en slík staðsetning  truflar eðlilega hringrás loftsins um herbergið og hindrar geislun frá ofninum. Ofnar, sem lokast inni bak við gluggatjöld, nýtast illa þar sem gluggatjöldin draga úr varmagjöf þeirra. Þar sem ofnar eru undir gluggum ættu gluggatjöld ekki að ná neðar en að gluggakistu.

Víða eru rúllugardínur og þær má draga niður að næturlagi og þannig minnka útgeislun gegnum glugga. Slíkar aðgerðir draga úr loftstreymi og kælingu við glerið. Það er svo jafnmikilvægt að draga frá á daginn og hleypa ókeypis hitageislum sólar inn í húsið.