Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Munað getur 13.000 kr. í bensínkostnaði milli bifreiðategunda á einni ferð milli Reykjavíkur og Egilsstaða.
 
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Húshitun

Langflestir landsmenn njóta hitaveitu eða um 90%, þar af tilheyra um rúmlega 86% hitaveitum er heyra undir reglugerð, um 1% öðrum jarðvarmaveitum og rúm 3% hitaveitum sem byggja á olíu- eða rafmagnshitun. Þau 9% landsmanna sem eftir eru nota rafmagnshitun og njóta þeir flestir, ásamt þeim sem eru á R/O veitum niðurgreiðslna til húshitunar.

Orkunotkun til húshitunar er háð stærð, gerð, staðsetningu og aldri húsnæðis. Forsendur Orkuspárnefndar gera ráð fyrir að meðalorkuþörf til húshitunar á íbúðarhúsnæði sé í kringum 60 kWh/m3.
Orkuveita Reykjavíkur hefur notað ákveðna stuðla til að meta eðlilega heitavatnsnotkun. Þar er vatnsnotkun á ári deilt með rúmmáli húsnæðis.
Orkuveitan gefur upp eftirfarandi viðmiðunargildi fyrir notkun hitaveituvatns á rúmmál húsnæðis. Lægra gildið er viðmið í vel einangruðu húsi með vel stilltu hitakerfi. Hærra gildið samsvarar eðlilegri eyðslu í húsi í þokkalegu ástandi.

Rúmmetri vatns á hvern rúmmetra húsnæðis á ári:
Stór fjölbýlishús    1,0 - 1,4
Minni fjölbýlishús   1,1 - 1,5
Einbýlishús            1,2 - 1,8

Nokkrar rannsóknir liggja fyrir um orkunotkun til rafhitunar á rúmmetra.  Þær hafa allar verið framkvæmdar af Orkustofnun.  Sú elsta frá 1984 er unnin af Jóni Vilhjálmssyni og Olavi M. Ojala þar sem meðalnotkunin reyndist vera um 83 kWh/m3.  Nýjustu tölur eru frá árinu 2005 í úttekt Eggerts Þrastar Þórarinssonar og Ólafs Péturs Pálssonar, þar sem athuguð var orkunotkun í öllu almennu íbúðarhúsnæði á köldum svæðum.  Niðurstöður þeirrar athugunar sýndu meðalorkunotkun upp á 67 kWh/m3 á ári.