Hjólreiðar og ganga
Bifreiðar eru gæðatæki sem flytja okkur á auðveldan hátt milli staða. Það má þó spyrja sig hvort við ofnotum ekki þennan farkost. Tveir jafnfljótir og reiðhjól eru mun heilsusamlegri, sparneytnari og umhverfisvænni kostir til styttri ferða og brenna engu nema líkamsfitu.
Samkvæmt tölum frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar er þriðjungur ferða í bifreið aðeins einn km. og 60% ferða innan við 3 km. Ef gönguhraði er 5 km/klst. og venjulegur hjólreiðahraði 20 km/klst., þá tekur einungis 12 mínútur að ganga 1 km og 3 mínútur að hjóla. Þannig mætti auðveldlega draga úr bílferðum um allt að þriðjung.
Það setja margir fyrir sig slæmt veðurfar þegar þeir velja bifreið umfram göngutúr eða reiðhjól. Þó svo að ganga eða hjólatúr yrðu einungis fyrir valinu við bestu veðurskilyrði þá myndi samt sparast heilmikil brennsla á jarðeldsneyti.