Gerðir varmadælna
Allar varmadælur nota vinnslumiðil í lokuðu kerfi og nýta þar óreiðubreytingu hans sem næst við varmaskipti við ytri varmauppsprettu, þ.e. þegar vinnslumiðillinn fer úr t.d. vökvafasa í gasfasa. Hefðbundnar varmadælur eru flokkaðar í nokkra grunnflokka eftir fasa varmauppsprettu og fasa varmafrástreymis, t.d. hefur vatn/loft varmadæla varmauppsprettu í vökvafasa (vatn) og skilar frá sér heitum gasfasa (loft).
Hérlend notkun varmadælna miðast við að varminn sé fenginn af svæðum þar sem einhver hiti er í jörðu. Minnstur kostnaður við nýtingu slíks hita er frá náttúrulegum varmauppsprettum á borð við volgrur eða laugar en þá má leggja varmaleiðnileiðslur beint í þær án verulegs jarðrasks (sjá mynd). Algengast er að hús séu hituð með vatnsofnakerfum og því er mestur vilji fyrir því að varmadælan skili frá sér heitu vatni sem fer í ofnakerfi sem yfirleitt er til staðar þar sem varmadælunni skal komið fyrir. Hafa skal í huga við nýbyggingar að hiti vatns frá hefðbundnum varmadælum er yfirleitt ekki hærri en 50-60 °C og þá er mælt með gólfhita til upphitunar eða hitablásurum. Einnig eru svokallaðir lághitaofnar eða tromluofnar nefndir í þessu samhengi en þeir eru útbúnir viftum sem auka gegnumstreymi og örva varmaskipti við loft. Hér einskorðast umræðan að mestu við einn flokk varmadælna, þ.e. vatn/vatn varmadælur. Loft/loft varmadælur eru algengastar allra varmadælna á heimsmarkaði og eru yfirleitt útfærðar á þann hátt að hægt er að snúa við flæði vinnslumiðilsins, þannig að varmadælan getur ýmist kælt eða hitað húsnæði. Þessi útfærsla er ódýrust varmadælna og selst vel í löndunum nálægt miðbaug en ekki eins vel þar sem krafan um upphitun er kælingarþörfinni yfirsterkari. Hitt þekkist þó að þær séu einnig notaðar til hitunar í kaldari löndum líkt og gerðist nýlega í stórum stíl í Noregi vegna raforkusparnaðarátaks þarlendra yfirvalda. Flestar hérlendar varmadælur sem notaðar hafa verið til upphitunar íbúðarhúsnæðis eru vatn/vatn varmadælur og er nýtni þeirra almennt meiri en í hinum gerðum varmadælna. Eftir meginumræðu um vatn/vatn varmadælur og skyldar dælur er minnst stuttlega á ísogs og ásogsvarmadælur.