Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082


Forðast skal öfgar í aksturlagi. Ef aksturslagið miðast við að taka hratt af stað og snögghemla þá getur eyðslan aukist um allt að 40%. Rannsóknir sýna að slíkt aksturslag dregur úr ferðatíma um aðeins 4%. Hagkvæmast er að taka rólega af stað og koma bílnum í háan gír sem fyrst. Jafn og mjúkur akstur með góðu flæði gefur besta raun enda fer allt að 50% orkunnar í innabæjarakstri í hröðun.

Hraðakstur dregur úr orkunýtni.  Með því að auka hraðann úr 90 km/klst. í 120 km/klst. getur eldsneytisnotkun aukist um allt að 20%. Hægt er að minnka eldsneytisnotkun um 10-15% með því að aka á 90 km/klst. frekar en 105 km/klst.

Forðist lausagang. Bifreið í lausagangi skilar engu nema eyðslu og mengun. Ef bifreið er lagt í meira en 30 sekúndur borgar sig alltaf að drepa á vélinni.

Keyrið í hæsta mögulega gír.  Því minna sem vélin þarf að reyna á sig þeim mun minna eldsneyti eyðir hún, því er mikilvægt að komast í háan gír eins fljótt og mögulegt er, sérstaklega á langferðum. Margir bílar hafa hraðastillingu (cruise control) sem er orkusparandi í lengri ferðum enda tryggir hún jafnan hraða og mjúkt aksturlag. Sjálfskipting kallar yfirleitt á meiri eyðslu en beinskipting. Hægt er að fá fram mýkri skiptingar á sjálfskiptum bíl með því að gefa örlítið eftir á eldsneytisgjöfinni þegar óskað er eftir skiptum í lægri gír.

Skrúfið rúðurnar upp. Opnir bílgluggar auka vindmótstöðu töluvert og þar með eldsneytiseyðslu, Á langferðum er frekar mælt með að hafa kveikt á loftkælingu eða kaldri miðstöð.

Forðist álagstíma í umferð.  Oftast er mögulegt er að sneyða fram hjá álagspunktum í umferð með því að velja annan ferðatíma eða aðra leið. Því lengri ferðatími og bið í umferð því meiri eyðsla.  Að leggja af stað örlítið fyrr eða seinna til vinnu getur sparað talsverðar upphæðir.

Hugsa! áður en lagt er af stað.  Með örlítilli umhugsun má draga verulega úr eyðslu.
Hér eru nokkur umhugsunarefni sem sparað getur fé:
 Þarf ég að fara.
 Get ég fengið far hjá öðrum.
 Er betra að hjóla eða ganga þessa ferð.
 Get ég sinnt fleiri en einu erindi í þessari ferð.