Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082


Réttur loftþrýstingur í hjólbörðum. Mikilvægt er að hafa ávallt réttan loftþrýsting í dekkjum. Of lítill loftþrýstingur eykur viðnám og getur aukið eldsneytiseyðsluna um allt að 6%.  Ef loftþrýstingur er ójafn í dekkjum getur ending dekkja minnkað um allt að 10%. Ef aðeins eitt dekk hefur of lítinn þrýsting getur ending hjólbarðans minnkað um allt að 10.000 km auk þess sem hemlunarvegalengd eykst. Athuga skal loftþrýsting a.m.k. mánaðarlega.

Illa stillt vél eykur eyðslu.  Mikilvægt er að tryggja, með réttu viðhaldi, að vél bifreiðarinnar sé ávallt rétt stillt.  Vanstillt vél getur notað allt að 50% meira eldsneyti og mengað í samræmi við það.

Hrein loftsía er mikilvæg. Óhrein eða stífluð loftsía getur aukið eyðslu um allt að 10%.
Bifreiðar þurfa hreint og gott loft til brennslu ekki síður en við sjálf.

Léttið bílinn. Óþarfa farangur eða þyngd eykur eldsneytisnotkun. Það gildir sama um bifreiðar og okkur mannfólkið, aukin byrði veldur meiri áreynslu. Því er gott að losa farþega- og farangursrýmið við óþarfa dót. 50 kíló geta aukið eldsneytiseyðsluna um 2%. Það er líka góð hugmynd að fjarlægja hluti eins og aukafarangursgeymslu á toppnum og toppgrindur sem ekki eru í notkun.

Minni loftmótstaða. Það er engin tilviljun að kappakstursbílar eru hannaðir eins og þeir eru. Því minni loftmótstaða því minni eyðsla. Toppgrindur og aukafarangursgeymsla á toppnum auka loftmótstöðu, því er mikilvægt að fjarlæga slíkt eftir notkun. Tóm farangurgeymsla skilar engu nema auknum rekstrarkostnaði.

Þvoið og bónið bílinn.  Smáatriðin skipta máli. Fuglaskítur á bifreið getur raunverulega aukið eyðslu um brotabrot. Bíllinn smýgur betur í gegnum loftið ef hann er hreinn og gljáandi, skítugur bíll getur eytt allt að 7% meira eldsneyti.

Taka hleðslutæki úr sambandi. Það fjölgar alltaf aukabúnaði sem hægt er að tengja við sígarettukveikjarann. Ef slík tæki eru tengd þegar vélin er ræst eykst álag á alternator bifreiðarinnar og aukið álag kallar á meiri orku.