Orkusetur, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri - Sími: 569 6085 - Fax: 462 6082
  • Ef endurnýja þarf gler þá borgar sig að setja upp filmugler eða svokallað K-gler sem hefur mun betri einangrunareiginleika en hefðbundið gler.
Orkunotkun á Íslandi
 
Nýskráningar bifreiða

Borvarmadæla á Grenhóli á Snæfellsnesi

Vélaverk hefur, í samvinnu við Orkusetur og ábúendur á Ytri Tungu, hafið uppsetningu á varmadælu til upphitunar á Grenhóli sem er 210 fm nýbygging. Notuð er Varmadæla frá Viessmann þar sem varmauppsprettan er 150 metra borhola við húsið.

Tenging á búnaði fyrir Grenhól verður samkvæmt neðanskráðu flæðiriti:

borvarmadaela2

 

Viessmann varmadæla nýtir jarðvarma frá borholu með hringrásrdælu í lokuðu kerfi. Hringrásarkerfið tekur upp varmann frá 150m djúpri borholu (5-12°C ) sem er notaður til upphitunar á húsakosti Grenhóls.
 
Varmadælan sér um að hita upp neysluvatn til almennra nota og hita upp hringrásarvatn til upphitunar fyrir ofn- eða gólfhita.  Nauðsynlegt er að hafa tvo hitatanka í varmadælukerfinu, þ.e. neysluvatnstank  og miðlunartank fyrir upphitun til að tryggja að alltaf sé nægjanlega heitt vatn. 
 
Varmadælan skiptir sjálfkrafa á milli hitunar á neysluvatnstank og miðlunartank sem tekur mið af varmaþörf á hvorum tank fyrir sig (neysluvatn fær forgang).

 

Nú þegar hefur verið tekin borhola og má sjá toppinn á henni á myndinni hér að neðan.