Tengiltvinnbifreið
Orkusetur vinnur nú að smíði og prófun á fyrsta tengiltvinnbílnum hér á Íslandi. Hefðbundinn tvinnbíl hefur rafmagnsmótor sem vinnur saman með bensínvélinni og gefur þannig betri nýtni og minni útblástur. Með því að setja stærri og öflugri rafhlöðu í slíka bíla opnast möguleikinn á að nota utanaðkomandi rafmagn sem orkugjafa. Slíka bíla mætti kalla Tengiltvinnbíla.
Tæknilegir og umhverfislegir kostir slíkra bifreiða er ótvíræðir. Bifreiðin yrði hlaðin gegnum hefðbundna heimilisinnstungu og stærsti hluti innanbæjarkeyrslu yrði á rafmagninu einu saman. Mengunarlaus og hljóðlaus umferð tæki þá við af útblæstri og hávaða sem fylgir innanbæjarumferð í dag. Með þessari tækni er ekkert gengið á kraft eða drægni bílsins enda grípur bensínvélin inn í þegar rafmagnið þrýtur.
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja eru bakhjarlar þessa verkefnis.